Mál Baldurs til mannréttindadómstólsins

Langflestum kærum sem berast dómstólnum er vísað frá

Mál Baldurs Guðlaugssonar, fyrrverandi ráðuneytisstjóra, hefur verið kært til Mannréttindadómstóls Evrópu. Líklegt er að það muni taka dómstólinn um ár að ákveða hvort málið verði tekið til meðferðar. RÚV greinir frá þessu. Mannréttindadómstóllinn tekur málið nú til athugunar, og ákveður hvort kæran sé meðferðarhæf. Langflestum kærum sem berast dómstólnum er vísað frá og því getur reynst erfitt að koma málum áfram.

Hæstiréttur staðfesti í febrúar tveggja ára fangelsisdóm yfir Baldri Guðlaugssyni, fyrrverandi ráðuneytisstjóra í fjármálaráðuneytinu, fyrir innherjasvik. Sakfellt var fyrir fimm atriði sem töldust innherjaupplýsingar þegar Baldur seldi bréf sín í Landsbankanum skömmu fyrir fall bankans. Baldur telur að með dóminum hafi verið brotið á honum í veigamiklum atriðum í skilningi ákvæða dómstólsins. Í kjölfar dómsins fól Baldur lögmönnum sínum að senda kæru vegna málsmeðferðarinnar til Mannréttindadómstóls Evrópu. Gerðu þeir það á fimmtudaginn í síðustu viku.


Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.