Komst inn í háskóla eftir að hafa sungið á YouTube

Söng um af hverju hann ætti að komast inn í skólann

Ungur menntaskólanemi í Bandaríkjunum ákvað að fara óhefðbundna leið til að sannfæra skráningardeild Michigan-háskóla í Bandaríkjunum um að samþykkja umsókn hans um skólavist. Hann skellti saman texta um af hverju hann vildi koma í skólann, tók það upp, setti á YouTube og sendi skráningarskrifstofunni.

YouTube-myndbandið hefur heldur betur slegið í gegn en þar syngur pilturinn, sem heitir Lawrence Yong, eigin útgáfu af laginu I Want You Back með Jackson 5. Myndbandið sló líka í gegn á skráningarskrifstofunni og hefur Young tryggt sér skóalvist við Michigan-háskóla næstkomandi haust en hann var einn af fjölmörgum umsækjendum sem settur voru á biðlista eftir að almennar umsóknir voru afgreiddar.

„Í alvöru tala þá hélt ég að ég fengi svona 100 til 200 smelli,“ segir Yong í samtali við vefritið AnnArbor.com um vinsældir myndbandsins. Þegar hafa meira en 110 þúsund smellir verið á myndbandið. „Ég hélt að vinir mínir myndu smella á það og kannski einhverjir úr kirkjunni minni.“

Bernadette Lis, aðstoðardeildarstjóri skráningardeildar skólans, segir í samtali við vefsíðuna að Yong hafi einfaldlega fangað athygli skólans. Hún segir að áhugi nemenda á skólanum sé hluti af því sem metið er þegar fólk á biðlista eftir skólaplássi er metið. Mikil eftirspurn er eftir plássum í Michigan-háskóla og voru til að mynda aðeins 46 af 14.600 umsækjendum á biðlista sem komust inn í skólann.


Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.