Ef þig hefur dreymt um að eignast þinn eigin litla ítalska bæ er rétti tíminn til að láta drauminn rætast núna. Ítalski bærinn Pratariccia er til sölu fyrir 2,5 milljónir evra, jafnvirði 397 milljóna íslenskra króna. Bærinn er 800 ára gamall en hann hefur staðið auður frá því á sjöunda áratug síðustu aldar. Í bænum eru þó 25 byggingar sem nýr eigandi hefur færi á að gera upp.
„Þetta er einstakt tækifæri til að eignast þitt eigið smáþorp, og verðið er alveg hlægilegt,“ segir Carlo Magni, sölumaðurinn sem sér um sölu bæjarins, í samtali við breska blaðið Telegraph. Salan á bænum fer fram í gegnum uppboðssíðuna eBay þrátt fyrir að verðið sé fyrirfram ákveðið. Bærinn er núna í eigu klausturs í nágrenninu.
Upphaflega átti að selja bæinn á tvöföldu því verði sem nú er boðið en aðeins tvö tilboð bárust í bæinn á því verði en samningar náðust um hvorugt þeirra.

Eurovison 2013
Blóðugt uppgjör í Seljahverfi
Harmleikur á Egilsstöðum
Alþingiskosningar 2013