Dreifðu kjörseðlum til vegfarenda

Hvöttu til kosningasvindls

Óprúttnir aðilar í miðbæ Reykjavíkur hafa dreift kjörseðlum, keimlíkum þeim er notaðir eru í forsetakosningunum, til gesta og gangandi og hvatt fólk til svindls.

Frá þessu segir á mbl.is og verslunarmaður í miðborginni staðfestir að hafa orðið var við mennina í samtali við DV. Eiga mennirnir að hafa verið með bunka að kjörseðlum og dreift þeim til allra sem leið voru til að kjósa í Ráðhúsi Reykjavíkur og hvatt til þess að þeir yrðu notaður samhliða raunverulegum kjörseðlum.

Slíkt er vitaskuld lögbrot en formaður kjörstjórnar í Reykjavík norður kannaðist ekki við málið þegar það var borið undir hana. Sá sagði ómögulegt fyrir aðra en starfsfólk kjörstjórna að nálgast kjörseðla en ef munur væri á atkvæðafjölda og fjölda skráðra kjósenda þegar upp væri talið gæti slíkt kallað á endurtalningu eða mögulega ógildingu.


Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.