Hvernig kaustu í forsetakosningunum?
Ólafur Ragnar Grímsson er með áberandi forskot á aðra frambjóðendur til forsetaembættisins samkvæmt fyrstu tölum. Ekkert getur komið í veg fyrir að hann verði forseti áfram.
Ólafur Ragnar Grímsson mælist með 53,6 prósent sé tekið framreiknað meðaltal þeirra kjördæma sem birt hafa tölur hingað til. Hans helsti keppinautur, Þóra Arnórsdóttir, nýtur stuðnings 32,6 prósenta.
Er þetta mjög í takti við þær niðurstöður sem skoðanakannanir voru að gefa í aðdraganda kosninganna en öll kjördæmi landsins hafa nú gert fyrstu tölur opinberar nema eitt.
Fylgi annarra frambjóðenda er einnig í takti við kannanir síðustu dagana. Ari Trausti Guðmundsson hefur mælst með milli átta og rúmlega ellefu prósent, Herdís Þorgeirsdóttir fengið tæplega þrjú prósent og sömuleiðis Andrea J. Ólafsdóttir. Hannes Bjarnason mælist með um eins prósenta fylgi.
Í Norðausturkjördæmi hafa verið talin eitt þúsund atkvæði og falla þau þannig að Ólafur Ragnar Grímsson fær 46,3 prósent, Þóra Arnórsdóttir 36,7 prósent og Ari Trausti Guðmundsson 10,6 prósent. Aðrir frambjóðendur með mun minna fylgi.
Í suðvesturkjördæmi, því stærsta í landinu, hafa verið talin 8.900 atkvæði. Þar er Ólafur Ragnar með 50,5 prósent greiddra atkvæða en Þóra Arnórsdóttir, sem næst kemur, með 39,3 prósent. Aðrir hafa mun minna fylgi.
Þá var Ólafur Ragnar með 62 prósent atkvæða í Suðurkjördæmi og í kringum helming atkvæða í Reykjavík suður og Reykjavík norður.
Ólafur Harðarson stjórnmálafræðingur sagði í Sjónvarpinu skömmu eftir að fyrstu tölur voru birtar að það væri ólíklegra en nokkuð annað að Ólafur Ragnar myndi ekki vinna kosningarnar.

Blóðugt uppgjör í Seljahverfi
Eurovison 2013
Alþingiskosningar 2013
Harmleikur á Egilsstöðum