Dómstóll í Oregon í Bandaríkjunum hefur dæmt karlmann í þriggja ára fangelsi fyrir að nýta sér nettengingu án leyfis og fyrir að gefa út bók þar sem almenningi er kennt að gera slíkt hið sama. „Ég tel að þú hafir framið alvarlegan glæp,“ sagði dómarinn við manninn, Ryan Harris, sem er 28 ára gamall. Dómarinn sagði að með þessu vonaðist hann til að senda öðrum tölvuþrjótum skilaboð um hættur þess að stunda ólögmæta háttsemi í tölvum og á netinu.
Samkvæmt bandaríska dagblaðinu Boston Globe þénaði Harris á bilinu 400 þúsund til einnar milljónar Bandaríkjadala, jafnvirði 50 til 125 milljóna króna, á sölu hugbúnaðar, tölvuíhluta og leiðbeininga um hvernig eigi að komast hjá takmörkunum eða verðskrám internetþjónustuaðila.
Saksóknari í málinu benti á að Harris hafi sýnt af sér einbeittan brotavilja og að hann hafi verið drifinn áfram af græðgi. Lögmaður hans sagði hinsvegar að hann hafi einungis verið kominn með nóg af völdum sem stórfyrirtæki hefðu yfir netnotkun stórfyrirtækja, bæði hraða og gæðum. „Hann gerði það sem hann gerði sökum gremju, eins og margt ungt fólk gerir,“ sagði lögfræðingur Harris um málið.

Blóðugt uppgjör í Seljahverfi
Alþingiskosningar 2013