Var rétt af þeim að ganga út?

Spurningakönnun

Var rétt af Andreu, Ara og Hannesi að ganga út?





Sjá niðurstöður

Um fimm hundruð manns hafa svarað spurningu í spurningakönnun DV um hvort rétt hafi verið af forsetaframbjóðendunum Andreu Ólafsdóttur, Ara Trausta Guðmundssyni og Hannesi Bjarnasyni, að ganga út úr kappræðum Stöðvar 2 í Hörpu.

Frambjóðendurnir gengu út til að mótmæla því að frambjóðendur myndu vera spurðir tveir og tveir saman, í stað þess að allir frambjóðendurnir sex yrðu í kappræðum saman. Þau höfðu farið fram á það að lágmarki, að hlutkesti yrði kastað um hverjir yrðu tveir saman. Stöð 2 lét hins vegar stafrófsröð ráða, sem gerði að verkum að Ólafur Ragnar Grímsson og Þóra Arnórsdóttir áttu að mætast tvö síðust, á eftir tveimur öðrum pörum.

Athugið að fyrirvara verður að setja á áreiðanleika könnunarinnar, upp að því marki að könnunin er lögð fram í samhengi fréttaflutnings af atburðum málsins.

Hér má taka þátt í könnuninni:


Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.