„Vandræðalegri sjónvarpsþáttur hefur varla sést á Íslandi“

Fjörugar umræður á Facebook

Hver fannst þér standa sig best í kappræðunum í Hörpu?




Sjá niðurstöður

Fjörugar umræður hafa átt sér stað á Facebook í kvöld um kappræður forsetaframbjóðenda á Stöð 2.

Egill Helgason þáttastjórnandi fullyrðir að vandræðalegri sjónvarpsþáttur hafi varla sést á Íslandi. Björg Eva Erlendsdóttir, stjórnarformaður RÚV segist í stöðuuppfærslu hafa misst af þættinum og prísa sig sæla. „Missi reyndar alltaf af Stöð 2 og sýnist á umræðunni að það sé heldur til bóta.“

Þingkonunni Vigdísi Hauksdóttur eru svokallaðar „kratabullur“ afar hugleiknar. Á Facebook slær hún á létta strengi, linkar á frétt um kappræðurnar og skrifar: „hahahahahahahahahaha - kratabullurnar farnar á taugum.“ Meðal þeirra sem „líkar“ þetta er Guðmundur Franklín Jónsson, formaður Hægri grænna.

Stefán Friðrik Stefánsson, trúnaðarmaður í Sjálfstæðisflokknum til margra ára, fer hörðum orðum um fyrirkomulag kappræðanna og lofar Ólaf Ragnar Grímsson hástert: „Kappræðurnar á Stöð 2 í kvöld voru eitt mesta stórslys íslenskrar fjölmiðlasögu - stöðinni til skammar. Ólafur Ragnar kom langbest út, hann stóðst atlöguna sem að honum var beint frá lélegum spyrlum Stöðvar 2 og smekklaust gríninnlegg í umræðu um forsetakjör.“

Þóra Arnórsdóttir forsetaframbjóðandi sendi frá sér stutt myndband eftir kappræðurnar þar sem hún hvatti til þess að héðan í frá yrði talað meira um framtíðina og minna um fortíðina í umræðunum um forsetakosningarnar.


Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.