Þorbjörn Þórðarson: „En þið stjórnið ekki dagskrárgerð Stöðvar 2“

Herdís Þorgeirsdóttir sammála þeim frambjóðendum sem gengu út

Var rétt af Andreu, Ara og Hannesi að ganga út?





Sjá niðurstöður

Herdís Þorgeirsdóttir, frambjóðandi til forseta Íslands, útskýrði í byrjun kappræðanna í kvöld hvers vegna hún hefði ekki gengið út með Andreu Jóhönnu Ólafsdóttur, Ara Trausta Guðmundssyni og Hannesi Bjarnasyni.

Herdís sagði frá aðdraganda málsins: „Okkur fjórum hafði ekki verið boðið til þátttöku í þessum þætti upphaflega. Og það blossaði upp mikil óánægja í samfélaginu vegna þess að þrátt fyrir allt virðist það vera þannig að lýðræðisvitund almennings sé nokkuð vakandi. Og Stöð 2 gaf eftir og bauð öllum þátttakendum.“ Síðan segir Herdís að frambjóðendurnir hafi komist að því að í útsendingunni ættu þau að tala tvö og tvö en ekki sex í einu.

„Ég vildi ekki koma hingað inn og efna til einhverra leiðinda heldur vildi ég senda yfirlýsingu áður og það féllust allir á það. Og það var send yfirlýsing til fjölmiðla og þar voru þessar ástæður útskýrðar og jafnframt var farið þess á leit að það yrði dregið um það í hvaða tímaröð við myndum koma fram.“

Hér greip Þorbjörn Þórðarson fréttamaður fram í fyrir Herdísi: „En þið stjórnið ekki dagskrárgerð Stöðvar 2 svo við skulum bara gera gott úr þeirri stöðu sem upp er komin.“ Að lokum sagðist Herdís vera sammála þremenningunum sem gengu út en ekki hafa viljað bregðast áhorfendum. Jafnframt þakkaði Herdís fyrir að hafa verið boðið.


Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.