Stjórn Geirs í góðum málum eftir hrun

Geir Haarde í einkageirann eftir 35 ár hjá hinu opinbera

Geir Hilmar Haarde er síðasti ráðherrann úr ríkisstjórn Samfylkingarinnar og Sjálfstæðisflokksins þegar hrunið varð árið 2008 sem fær vinnu. Sjö af tólf ráðherrum úr ríkisstjórninni sitja enn á þingi, þar af tveir í núverandi ríkisstjórn.

Tilkynnt var um það í síðustu viku að Geir Hilmar hafi gengið til liðs við Opus lögmannsstofu, sem er í eigu stjúpsonar hans. Samkvæmt tilkynningu frá lögmannsstofunni mun Geir starfa sem ráðgjafi í alþjóðlegum verkefnum og á heimasíðu stofunnar stendur að hann hafi umsjón með alþjóðasviði hennar. Geir er sjálfur ekki menntaður lögfræðingur en hann er með MA-gráðu í bæði hagfræði og alþjóðastjórnmálum. Þetta er fyrsta starf hans eftir að hann lauk háskólanámi sem ekki er á vegum hins opinbera.

„Þetta leggst bara mjög vel í mig,“ sagði Geir H. Haarde í samtali við Morgunblaðið stuttu eftir að tilkynnt var um nýjan starfsvettvang.

Meira »


Gleymt lykilorð?

Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.