Jóhannes Kr. Kristjánsson, fréttamaður, skrifar um dóttur sína Sigrúnu Mjöll í einlægri grein á bloggi sínu . Jóhannes vinnur nú að því að skrifa bók um dóttur sína.
Sigrún lést vegna of stórs skammts af morfíni fyrir tveimur árum en hún er yngsta barnið á Íslandi sem hefur látist eftir of stóran skammt af eiturlyfjum. „Í dag eru tvö ár síðan Sissa lést vegna of stórs skammts af morfíni í herbergiskytru við Laugaveginn. Sissa var látin þegar bráðaliðar og lögreglumenn komu á staðinn. Endurlífgun var reynd í um klukkustund samkvæmt skýrslum. Tvö önnur voru í íbúðinni; ung stúlka og fullorðinn karlmaður.“ ritar Jóhannes.
„Ég hef lítið heyrt af manninum sem Sissa kallaði kærasta – mann sem var 29 ára með dóttur minni 17 ára. Hver veit nema hann hafi á þessum tveimur árum sem liðin eru, kynnst öðrum ungum stúlkum og kynnt þær fyrir heimi læknadópsins? Hver veit nema að hann hafi aðstoðað einhverja við að sprauta sig í gærkvöldi – eða nú í morgunsárið í einhverju dópgreni? Ég vona svo innilega ekki.“
Tvö ár eru liðin frá andláti Sigrúnar en ekki er enn búið að afgreiða málið úr kerfinu. Ákvörðun hefur ekki enn verið tekin um hvort ákært verði eða málið látið niður falla.
„Ég vil að maðurinn verði ákærður. Ég vil að dauði Sissu hafi fælingarmátt. Ég vil að fullorðnir karlmenn sem útvega ungum stúlkum dóp og sprauta þær jafnvel, fái þau skilaboð að það sé ekki í lagi. Ég hef síðustu mánuði talað við fjölda stúlkna og kvenna sem hafa verið eða eru í neyslu og þær hafa allar sagt; „Ég sprautaði mig aldrei sjálf fyrstu mánuðina. Það var alltaf einhver gaur sem gerði það.“
Í þessum mánuði fæ ég svörin úr kerfinu. Hver sem niðurstaðan verður hlýti ég henni. En ef enginn verður ákærður er alveg ljóst að það verður að breyta lögum hér svo hægt verði að ákæra fullorðna karlmenn sem moka dópi í ungar stúlkur – sem deyja af völdum þess. Það er veruleiki samfélagsins. Hver sem niðurstaðan verður ætla ég að birta öll gögn varðandi málið í bókinni sem ég er að skrifa um Sissu. Ég vil að fólk upplifi veruleikann í gegnum þau gögn.“

Blóðugt uppgjör í Seljahverfi
Alþingiskosningar 2013