Rúnar Eff hrakti burt þjóf

Kom eldri manni til bjargar við Ingólfstorg

„Ég var að borða kebab þarna inni á veitingastaðnum Ali Baba og sat þar inni þegar ég sá eldri mann koma með stóran húðflúraðan tappa hangandi í sér,“ segir tónlistarmaðurinn Rúnar Eff sem kom eldri manni til bjargar við Ingólfstorg á miðvikudaginn þegar maður í annarlegu ástandi reyndi að ræna hann. „Ég svona fór að spá í hvað væri að gerast því þessi stóri var eitthvað að toga í hann og svo endaði það með því að hann fór að kýla hann og taka aðeins á honum. Þannig að ég henti frá mér kebabinu og hljóp út og reif hann af honum,“ segir Rúnar til að lýsa atvikinu.

Ætlaði ekki að hætta

Þrátt fyrir að hann hefði skorist í leikinn ætlaði þjófurinn ekki gefast upp og hélt áfram að atast í gamla manninum. Rúnar spurði hvort ekki væri allt í lagi en þjófurinn sagðist eiga ýmislegt sökótt við manninn. Rúnar trúði því rétt mátulega og tók aðeins á þjófnum sem að lokum sleppti gamla manninum og hljóp á brott.

„Ég veit ekki hvort hann náði einhverju af honum en kallinn var með bjór í poka sem hann var að reyna að taka af honum.“ Rúnar tekur fram að gamli maðurinn hafi þó ekki verið ógæfumaður, hann hafi einfaldlega verið að koma úr Vínbúðinni og þess vegna hafi hann verið með bjór í poka.

„Ég ræddi við gamla manninn eftir þetta en hann sagðist aldrei hafa séð manninn áður,“ segir Rúnar. Má því ætla að þjófurinn hafi valið hann af handahófi en ekki af því hann taldi sig eiga eitthvað sökótt við hann líkt og hann sagði við Rúnar.

„Góðverk dagsins“

Maðurinn var eðlilega mjög skelkaður eftir atvikið en lögregla kom fljótlega á vettvang. Rúnar gat sagt lögreglunni hvert þjófurinn hljóp og hann las það á netmiðlum skömmu síðar að hann hefði náðst. „Ég fór svo bara og kláraði kebabið mitt og fór aftur að vinna. Það var ágætt að hafa gert þarna góðverk dagsins.“

Það kom Rúnari mikið á óvart að svona atvik skyldi eiga sér stað um miðjan dag en gamli maðurinn þakkaði honum mikið fyrir að hafa verið réttur maður á réttum stað á réttum tíma. Sjálfur telur hann að flestir hefðu stokkið til, líkt og hann, ef þeir hefðu orðið vitni að slíku atviki. „Eða maður vonar það allavega.“

Rúnar sagði frá atvikinu á Facebook-síðunni sinni og hlaut mikið lof fyrir hetjudáðina. „Góðverki dagsins lokið. Sat á veitingastaðnum Ali Baba þegar einhver útúr dópaður vitleysingur réðst à eldri mann og reyndi að ræna hann, úti á Ingólfstorgi. Lurkurinn hjólaði í màlið og græjaði;-)“ 169 manns líkaði við stöðuuppfærsluna og margir hylltu hann í athugasemdakerfinu.


Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.