Hefur þú ákveðið hvaða frambjóðanda þú ætlar að kjósa á morgun?
Í kvöld var síðasti umræðuþáttur Ríkissjónvarpsins um forsetaframbjóðendurnar sex, þau Andreu Ólafsdóttur, Ara Trausta Guðmundsson, Hannes Bjarnason, Herdísi Þorgeirsdóttur, Ólaf Ragnar Grímsson og Þóru Arnórsdóttur. Í þættinum var farið yfir kosningabaráttuna og að loknum umræðunum fengu allir frambjóðendurnir eina mínútu til að ávarpa þjóðina.
Fyrstur var Hannes Bjarnason, en hann vakti máls á því að fólk ræddi gjarnan reynsluleysi hans. Hann lagði áherslu á að hann væri ekki reynslulaus, heldur hefði starfað sem verkefnastjóri í Noregi. Hann taldi það mikilvægt að geta horft út fyrir sína eigin persónu og stýrt verkefnum og teymum á farsælan hátt. Hannes sagði einnig að margir hefðu hrósað honum fyrir að hafa hugrekki og þor til að fara í framboð en hann vildi fullvissa kjósendur um að hann væri með báða fætur á jörðinni og stæði fast í þá þrátt fyrir að á móti blési. Hann væri sáttasemjari og hefði mikla reynslu af slíku.
Herdís Þorgeirsdóttir sagði að á morgun kæmi í ljós hvort að þjóðin væri tilbúin til þess að kveðja hrunið á Íslandi og samfélag niðurbrots þar sem peningaöfl réðu ríkjum og byggðu vald sitt á fjölmiðlum og pólitík. Herdís sagðist hafa hugrekki til að fara gegn slíkum öflum og sagðist aldrei gefast upp, hún væri bjartsýn og vildi þjóna íslensku þjóðinni sem slíkur forseti. Þá sagðist hún hvetja fólk til að kjósa sér forseta sem ekki tengdist peningaöflum eða stjórnmálaöflum.
Ólafur Ragnar Grímsson kvaðst hafa lagt mikla áherslu á það í upphafi sinnar kosningabaráttu að umræðan um forsetakosningarnar yrði bæði málefnaleg og innihaldsrík. Þakkaði hann frambjóðendum fyrir að hafa tekið þátt í slíkri samræðu. Hann sagði að forsetakosningarnar væru lýðræðishátíð og þakkargjörð til kynslóðanna sem færðu okkur sjálfstæði og gerðu okkur að frjálsri og fullvalda þjóð.
Ari Trausti Guðmundsson sagði að Íslendingar vissu að hann starfaði bæði af þekkingu og reynslu og að um hann hefðu ekki staðið hatrammar deilur. Hann sagði að forseti Íslands ætti að starfa fyrir landið en ekki landið fyrir hann og að ef hann næði kjöri hefði þjóðin valið sér traustan trúnaðarmann og sameiningarafl. Kvaðst hann vilja vera hjartsláttur þessa lands.
Andrea Ólafsdóttir bað þjóðina að íhuga samfélagssáttmálann og það hvort að það ættu bara sumir að fylgja lögum en aðrir ekki. Hún sagði að þjóðin þyrfti að taka höndum saman og leysa málin, en að forseti Íslands gæti þurft að grípa þar inn í til þess að liðka fyrir þegar að þingi eigi í erfiðleikum með að leysa mál. Andrea hvatti kjósendur til að kjósa af hugrekki á morgun.
Þóra Arnórsdóttir þakkaði fyrir þarfa og góða umræðu síðustu vikurnar. Sagðist hún vonast til þess að íslenska þjóðin myndi snúa bökum saman, verða glaðari og bjartsýnni og að fólk kæmi betur fram við hvort annað en það hefði gert. Hún sagðist vona að hún gæti lagt sitt af mörkum svo að sátt gæti náðst í samfélaginu.
Hér er þátturinn baráttan um Bessastaði
Fyrir þá sem enn hafa ekki gert upp hug sinn geta þeir skoðað svör frambjóðenda við spurningum lesenda DV á Beinni Línu:
Svör Andreu Ólafsdóttur á Beinni línu.
Svör Ara Trausta Guðmundssonar á Beinni línu.
Svör Hannesar Bjarnasonar á Beinni línu.
Svör Herdísar Þorgeirsdóttur á Beinni línu.
Svör Ólafs Ragnars Grímssonar á Beinni línu.
Svör Þóru Arnórsdóttur á Beinni línu.

Hemmi Gunn fallinn frá