Útigangsmaður rændi gamlan mann

Gistir fangaklefa vegna ölvunar

Í tilkynningu frá lögreglunni kemur fram að útigangsmaður hafi stolið peningum af öldruðum manni sem sat á bekk við Austurvöll núna í eftirmiðdaginn.

Segir að starfsfólk nærliggjandi veitingastaðar hafi komið gamla manninum til aðstoðar þannig að hann fékk peningana sína til baka. Lögreglan var einnig kölluð til og útigangsmaðurinn handtekinn og vistaður í fangageymslunni vegna ölvunarástands sem og þjófnaðarins.


Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.