Obama með forustu í forsetaslagnum

Munar nokkrum prósentustigum

Barack Obama, forseti Bandaríkjanna, er með forustu samkvæmt nýrri skoðanakönnun fyrir forsetakosningarnar sem fram fara í Bandaríkjunum í nóvember. Samkvæmt skoðanakönnun Wall Street Journal og NBC sjónvarpsstöðvarinnar er Obama með þriggja prósentustiga forskot á Mitt Romney, frambjóðanda Repúblikanaflokksins.

Samkvæmt sömu skoðanakönnun telja fleiri óákveðnir kjósendur líklegt að þeir kjósi Obama frekar en Romney. Könnunin leiðir líka í ljós að kjósendur í ríkjum sem ekki hafa sterk tengsl við flokkana eru líklegri til að kjósa Obama. Vinni hann í þeim ríkjum gæti farið að hann fái 50 prósent atkvæðanna gegn aðeins um 42 prósent atkvæða Romneys.

Það er þó ekki svo að Obama sé vinsæll því aðeins 47 prósent bandarísku þjóðarinnar segist vera ánægð með hann, sem er lægsta mælda hlutfall það sem af er ári.


Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.