Móðir Brynjars segist hafa verið boðið að borga hann út úr fangelsinu

Taílenskur dómstóll úrskurðar í málinu á næstunni

Taílenskur dómstóll mun kveða upp dóm í máli Brynjars Mettinissonar, sem setið hefur í fangelsi síðan í lok maí á síðasta ári, á næstunni. Meðferð málsins fyrir dómstólum er lokið, samkvæmt því sem móðir Brynjars sagði í samtali við Morgunútvarpið á Rás 2 í morgun. Ekki liggur fyrir dagsetning hvenær dómurinn verður kveðinn upp.

Móðir Brynjars, Borghildur Antonsdóttir, segist hafa litlar upplýsingar um stöðu málsins og að hún hafi ekki náð tali af lögfræðingi hans síðan málflutningi fyrir dómnum lauk. Hún segir þó vita að Brynjar búi við slæmar aðstæður í fangelsinu.

„Meðferðin á föngunum er hræðileg og þetta fjallar allt um peninga í Taílandi. Það var hringt í mig þrisvar sinnum af lögreglunni sem tók Brynjar og bauð mér að borga hann út,“ segir móðir hans. Borghildur segist einfaldlega ekki hafa efni á því að kaupa Brynjar út úr fangelsinu og að þegar hafi hún borgað mörg hundruð þúsund krónur í ýmsan kostnað til að tryggja Brynjari vatn í fangelsinu, lögfræðikostnað og annað nauðsynlegt.

Brynjari er gefið að sök að hafa staðið í viðskiptum með fíkniefni í Taílandi. Verði Brynjar dæmdur á hann yfir höfði sér allt að 30 ára fangelsi en Taíland er með eina hörðustu fíkniefnalöggjöf heims.

Hægt er að hlusta á viðtalið við Borghildi á vef RÚV.


Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.