„Nú er ljóst að þeir sem vonuðu innilega að Egill yrði ákærður eru miður sín yfir þessum málalokum, þannig að hefndin og vandlætingin fær takmarkaða útrás hjá þeim.“ Þetta er á meðal þess sem Brynjar Níelsson, lögmaður Egils Einarssonar, skrifar í nýjum pistli á bloggi sínu á Pressunni. Þar segir hann ákveðna einstaklinga hamast við að halda því fram að Egill sé sekur eða að minnsta kosti sé ekki sannað að hann sé saklaus. „Þetta er sérkennileg nálgun og nýmæli að sakleysi þurfi að sanna.“
Brynjar segir í pistlinum sem ber heitið „Hvenær eru sakaðir menn saklausir?“ að Egill, sé eins og allir aðrir, saklaus þar til sekt hans sé sönnuð. „Auðvitað er það þannig að sekir menn geta verið sýknaðir - alveg eins og saklausir menn geta verið sakfelldir. Það hefur hins vegar engan tilgang að vera velta sér upp úr slíku.“ Brynjar spyr hvort ekki beri að fagna því að gögn málsins bendi ekki til sektar Egils. „Þá hefur stúlkunni kannski ekki verið nauðgað og saklaus maður ekki verið ákærður. Það er gleðiefni hefði maður haldið.“
Hann fer í kjölfarið hörðum orðum um „ofstækisfólk“ sem getur ekki glaðst yfir þessum málalokum. „Það skal djöflast í manninum fram í rauðan dauðann. Allt, að því er virðist, vegna gamallar bloggfærslu hans sem fabrikeruð persóna, þar sem gert var grín að einhverjum íslenskum femínistum sem trúa því að karlmenn almennt kúgi konur og beiti þær kynferðislegu og andlegu ofbeldi eftir hentugleika. Það grín var óviðeigandi að mati margra og þess vegna baðst Egil afsökunar á því.“ Í pistlinum segir Brynjar jafnframt að það sé ekki nýtt að menn hafi gert grín að einstaklingum og hópum með grófum hætti.
Þá segir Brynjar að sérfræðingar í „sekt og sakleysi“ hafi svarað spurningu hans um það hvenær sakaðir menn séu saklausir, með þessum hætti: „Þeir sem einu sinni hafa verið sakaðir um brot eru aldrei saklausir, að minnsta kosti ekki þeir sem sakaðir eru um kynferðisbrot. Og þá höfum við það og við skulum vona að þessir sömu sérfræðingar verði aldrei sakaðir um slík brot.“ Brynjar sem er fyrrum formaður lögmannafélagsins hefur oftar en ekki gagnrýnt aðferðir femínista. Um starfsaðferðir Stóru systur sagði hann meðal annars: „Tilgangur helgar meðalið og í mínum huga er þetta ekkert annað en venjulegt ofstæki sem hefur alltaf þrifist. Þetta er ekkert öðruvísi en hefur alltaf verið. Klæða sig í kufla, dulbúa sig, hóta fólki. Ég hef enga gleði yfir að horfa á þetta.“

Eurovison 2013
Blóðugt uppgjör í Seljahverfi
Harmleikur á Egilsstöðum
Alþingiskosningar 2013