Dómur yfir norska listmálaranum Odd Nerdrum var staðfestur í gær. Í Dagbladet í Noregi kemur fram að Nerdrum hafi verið dæmdur í teggja ára og tíu mánaða fangelsi fyrir að svíkja undan skatti. Þá var hann einnig dæmdur til að greiða jafnvirði einnar milljónar króna í málskostnað. Norski listfræðingurinn Dag Solhjell hefur látið frá sér að um „réttarmorð" sé að ræða.
Nerdrum fékk jafnvirði 275 milljóna íslenskra króna vegna sölu á myndum í New York á árunum 1998-2002. Hann taldi peningana ekki fram til skatts en geymdi þá í bankahólfi í Austurríki. Skattayfirvöld töldu Nerdrum með þessu vera að svíkja undan skatti. Nerdrum hélt því fram að peningarnir væru lán vegna 32 mynda sem eyðilögðust vegna gallaðrar málningar á níunda áratugnum.
Nú liggur endanlega niðyrstaða fyrir, en Nerdrum hafði áður fengið fangelsisdóm fyrir þetta mál í undirrétti.

Blóðugt uppgjör í Seljahverfi
Alþingiskosningar 2013