„Kennitöluflakk er ekki ólöglegt“

Persónuníð, kennitöluflakk, lögsóknir og játningar á íslenskum Apple markaði

„Markmiðinu er náð. Það er búið að brjóta mig niður, búið að lemja mig niður í skítinn,“ skrifaði Friðjón Björgvin Gunnarsson framkvæmdastjóri buy.is á spjallsvæði Verðvaktarinnar. Áður hafði Friðjón varist ásökunum um skipulagt kennitöluflakk og nokkuð stórtæk skattsvik. „Kennitöluflakk er ekki ólöglegt. Kennitöluflakk er ekki einu sinni siðlaust,“ skrifar Friðjón og bætir við að viðskipti hans hafi líklega kostað ríkið nokkuð fé.

Á vefsvæði verðvaktarinnar má finna verðsamanburð á tölvu og íhlutum en þar að auki býðst notendum vefsins að ræða ýmislegt tengt tölvum og þá sérstaklega það sem varðar þjónustu fyrirtækjanna hér á landi. Þótt vefurinn verði að teljast fremur óþekktur meðal almennings virðast umræður þar skipta töluverðu máli fyrir seljendur tölvuvara enda öflugur samræðuvettvangur viðskiptavina tölvuverslana og áhugamanna um tækni.

Vefverslunin buy.is hefur á vefnum verið nokkuð á milli tannanna á notendum en rekstur verslunarinnar hefur ítrekað skipt um kennitölu við þrot rekstrarfélags vefsins. Raunverulegt eignarhald vefsvæðisins virðist þó ávallt í sömu höndum þótt nýtt rekstrarfélag sé stofnað.

Meira »


Gleymt lykilorð?

Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.