Hvítlauksþjófar teknir á landamærunum

„Bifreiðarnar þrjár lyktuðu af hvítlauk“

Austuríska lögreglan stöðvaði í dag þrjá sendiferðabíla, sem voru smekkfullir af hvítlauk, sem voru á leið yfir landamærin yfir til Ungverjalands. Lögregluna grunar að um þýfi sé að ræða og hefur lagt hald á hvítlaukinn. Talsvert magn af hvítlauki var í bílnum, eða um 9,5 tonn.

Fimm menn komu að flutningi hvítlauksins en þeir voru stöðvaðir áður en þeir komust yfir til Ungverjalands. Þeir voru í fyrstu yfirheyrðir á landamærastöðinni en eftir yfirheyrsluna voru þeir hnepptir í varðhald og bílarnir gerðir upptækir.

Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni sem AP-fréttastofan birtir leikur grunur á að hvítlaukurinn sé uppruninn á Spáni. Virði laukanna er talið hlaupa á um 4,7 milljónum króna.

Í samtali við austurrísku fréttastofuna APA sagði einn lögreglumannanna sem handtók mennina að ekki hafi leikið neinn vafi á hvað væri í bílunum þegar þeir voru stöðvaðir. „Bifreiðarnar þrjár lyktuðu af hvítlauk,“ sagði lögreglumaðurinn.


Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.