Hvern ætlar þú að kjósa í forsetakosningunum um helgina?
Aðeins þrír dagar eru þar til Íslendingar ganga til kosninga um embætti forseta Íslands. Sex frambjóðendur keppast um forsetastólinn, þar á meðal sitjandi forseti. Þóra Arnórsdóttir fjölmiðlakona og Ólafur Ragnar Grímsson forseti hafa mælst með mest fylgi í skoðanakönnunum en enn er ekki útséð hver hlýtur kosningu í embættið.
Auk þeirra Þóru og Ólafs eru Ari Trausti Guðmundsson jarðfræðingur, Herdís Þorgeirsdóttir, prófessor í lögum, Andrea Ólafsdóttir, sem þekktust er fyrir baráttu sína með Hagsmunasamtökum Heimilanna, og Hannes Bjarnason í framboði til embættisins.
Samkvæmt könnun sem gerð var á vefsíðu DV í vikunni eru langflestir búnir að gera upp við sig hvaða frambjóðenda þeir ætla að gefa atkvæði sitt. Að þessu sinni spyrjum við hvaða frambjóðenda af þeim sex sem boðið sig hafa fram lesendur ætla að kjósa.

Blóðugt uppgjör í Seljahverfi
Eurovison 2013
Harmleikur á Egilsstöðum
Alþingiskosningar 2013