„Við erum með opið hús, ætlum að hafa gamaldags kökuhlaðborð. Þetta er náttúrulega stór áfangi fyrir transfólk á Íslandi og í rauninni svolítið bitinn í púsluspilinu sem vantaði upp á réttindi hinsegin fólks fólks hér á landi,“ segir Guðmundur Helgason, formaður Samtakanna ´78. Boðað hefur verið til fagnaðar í húsakynnum samtakanna í tilefni af því að í dag taka gildi lög þar sem viðurkennd eru réttindi transfólks á Íslandi.
„Við lítum á þetta sem stórkostleg fyrsta skref en það eru ennþá nokkrir hlutir sem þarf að laga varðandi transfólkið,“ segir hann og nefnir til dæmis breytingar á hegningarlögum. Guðmundur stór áfangi að löggjafarvaldið hafi viðurkennt transfólk. „Þetta er ekki auðvelt ferli og fólk er ekki að gera þetta af gamni sínu. Fólk fíflast með þetta og finnst þetta voða fyndið en þetta er mjög mikið alvörumál,“ segir Guðmundur sem segir þó enn skorta þekkingu á málefnum transfólks.
„Það er sérstaklega út í þjóðfélaginu lítil þekking á málefnum transfólks, fólk skilur þetta ekki. Enn þann dag í dag eru dæmi þess að foreldrar afneiti börnunum sínum ef þetta kemur upp. Ég þekki persónulega dæmi um að það hafi gerst í dag,“ segir Guðmundur. „Fólk er ekki tilbúið að viðurkenna að þetta sé alvöru.“
Kökuboðið er opið öllum á meðan húsrúm leyfir segir Guðmundur. Fögnuðurinn fer fram í húsnæði samtakanna að Laugaveg 3 í Reykjavík.

Hemmi Gunn fallinn frá