Bæjarstjóraskipti verða í dag í Hafnarfirði. Fulltrúi Vinstri grænna í bæjarstjórninni, Guðrún Ágústa Guðmundsdóttir, tekur við starfi bæjarstjóra á sama tíma og Guðmundur Rúnar Árnason, fulltrúi Samfylkingarinnar, lætur af því starfi. Bæjarstjórnarfundur stendur nú yfir þar sem gengið er frá breytingunum.
Ástæða skiptanna nú er samningur sem gerður var á milli Vinstri grænna og Samfylkingarinnar í bænum um meirihlutasamstarf. Fyrsti dagur hennar í embætti er á morgun.
Guðrún Ágústa er eini fulltrúi Vinstri grænna í bæjarstjórninni en hún fékk 14,6 prósent atkvæða, sem voru 1.448 einstök atkvæði, í sveitastjórnarkosningunum árið 2010. Hún samdi við fimm fulltrúa Samfylkingarinnar um meirihlutasamstarf en áður hafði Samfylkingin verið í hreinum meirihluta í bæjarstjórninni. Sjálfstæðismenn eru í minnihluta í Hafnarfirði, einnig með fimm bæjarfulltrúa.
Guðrún Ágústa er fædd 12. október 1966. Hún er með B.A próf í almennri bókmenntafræði með fjölmiðlafræði sem aukagrein. Einnig hefur hún lokið prófi í hagnýtri fjölmiðlun og kennslufræði til kennsluréttinda.
Undanfarin ár hefur hún starfað sem sviðsstjóri fjölmiðlagreina við Flensborgarskólann í Hafnarfirði ásamt því að vera bæjarfulltrúi fyrir Vinstri græna. Guðrún Ágústa hefur setið í bæjarstjórn síðan 2006, verið formaður bæjar- og fjölskylduráðs og formaður í stjórn Strætó.

Hemmi Gunn fallinn frá