Grunuðum barnaníðingi gert að víkja úr réttarsal

Fær ekki að vera viðstaddur skýrslutöku

Karlmaður sem sakaður er um kynferðisbrot gagnvart tveimur einstaklingum fær ekki að vera viðstaddur þegar að fólkið ber vitni og gefur skýrslu fyrir héraðsdómi.

Þetta er niðurstaða Hæstaréttar, en dómurinn snýr við ákvörðun Héraðsdóms Reykjavíkur þess efnis að maðurinn fái að vera viðstaddur.

Maðurinn er sakaður um að hafa brotið á stúlku sem er nú 25 ára og pilti sem nú er 19 ára. Brotin gagnvart stúlkunni eru talin hafa verið framin þegar hún á aldrinum 12 til 15 ára, en gagnvart piltinum frá því hann var 5 til 7 ára og þar til hann varð 18 ára.

Fóru fórnarlömbin fram á það að þau gæfu skýrslu í þingsal án þess að maðurinn væri viðstaddur. Maðurinn neitaði því og vildi ekki fylgjast með skýrslutökunni úr hliðarherbergi.

Héraðsdómur Reykjavíkur hafði neitað þessari ósk og sagði að hagsmunir ákærða vegi þyngra en hagsmuni fórnarlambanna. Hann ætti því að vera viðstaddur og ekki var fallist á þau rök að fólkinu þætti sérstaklega íþyngjandi að hafa manninn viðstaddan. Það væri vissulega íþyngjandi en það gæti ekki vegið upp á móti rétti mannsins til að vera viðstaddur.

Það var hinsvegar mat Hæstaréttar að nærvera mannsins gæti haft áhrif á framburð fórnarlambanna. Til stuðnings ákvörðunarinnar voru lögð fram vottorð sálfræðinga um andlega heilsu fólksins. Í þeim sagði að nærvera mannsins gæti verið sérstaklega íþyngjandi og jafnvel valdið því að framburður þeirra yrði örðuvísi en ella. Maðurinn fær því ekki að vera í þingsal.


Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!

Athugasemdir

Athugasemdir eru ekki leyfðar við þessa frétt.