Börkur dæmdur í hálfs árs fangelsi fyrir að hrækja á dómara

Var fjarverandi þegar dómurinn var kveðinn upp

Börkur Birgisson hefur verið dæmdur í sex mánaða fangelsi fyrir að hrækja á skikkju héraðsdómara og kallað hana tussu. Dómur yfir Berki var kveðinn upp í morgun í Héraðsdómi Reykjavíkur en Börkur var sjálfur fjarverandi þegar dómurinn yfir honum var kveðinn upp. Vísir greinir frá.

Börkur býður dóms í fleiri málum en hann hefur verið meðal annars verið ákærður fyrir fjárkúgun og ofbeldi. Hann sætir einnig rannsókn ásamt félaga sínum Annþóri Kristjáni Karlssyni eftir að maður fannst látinn í fangaklefa á Litla Hrauni. Eru þeir félagarnir grunaðir um að hafa ráðið manninum bana.

Við meðferð málsins neitaði Börkur að hafa kallað dómarann tussu og sagðst hafa verið að beina orðum sínum til „annarrar tussu“ í salnum. Hann viðurkenndi að hafa hrækt í átt að dómaranum.


Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!

Athugasemdir

Athugasemdir eru ekki leyfðar við þessa frétt.