„Væri ég forseti hefði ég fyrir löngu borið mig saman við fólkið í landinu um hvort það vildi veita ákveðnum ráðherrum lausn,“ sagði Andrea Jóhanna Ólafsdóttir, forsetaframbjóðandi og fyrrverandi formaður Hagsmunasamtaka Heimilanna, í samtali við Smuguna í dag. „Þetta eru óvenjulegar aðstæður sem við glímum við í dag, og það getur þurft að taka á því með óvenjulegum lausnum, ef fólk bregst skyldum sínum og ábyrgð.“
Þetta er ekki í fyrsta skipti sem Andrea segist hafa verið tilbúin að túlka og nýta heimildir í stjórnarskránni sem snúa að forsetanum en hafa ekki verið notaðar áður. Í þetta skipti vísar hún í 15. grein stjórnarskrárinnar sem segir að forseti skipi ráðherra og veiti þeim lausn. Andrea segir það rétt borgara að draga umboð fulltrúa sinna til baka. „Ef þeir reynast ekki starfi sínu vaxnir eða ganga gegn vilja þjóðarinnar eða almannahagsmunum, þá eigum við að geta tekið umboð okkar aftur,“ sagði hún.
Andrea hafnar því hinsvegar að hafa sagt að hún hefði verið löngu búin að reka ráðherra í ríkisstjórninni hefði hún verið í aðstöðu til þess, líkt og kemur fram í frétt Eyjunnar um ummælin. „Hér er eyjan að fara með rangt mál - ég sagði aldrei það sem fram kemur í fyrirsögn né heldur það sem kemur fram í fyrstu setningu þessarar greinar,“ segir Andrea um frétt Eyjunnar á Facebook-síðu sinni og bætir við að hún hafi farið fram á það við Eyjuna að fréttin verði leiðrétt.

Blóðugt uppgjör í Seljahverfi
Eurovison 2013
Harmleikur á Egilsstöðum
Alþingiskosningar 2013