Vann 73 milljónir í Lottó: „Hún varð stjörf“

Leitað í nokkrar vikur

Vinningshafinn sem græddi 73 milljónir króna með því að kaupa lottómiða í Leirunesti á Akureyri þann 9. júní sl. þegar hún keypti bensín hafði ekki hugmynd um að hún hefði hlotið stórvinning þegar hún bað um að farið yrði yfir miðann hennar í gær. Akureyri vikublað hefur þetta eftir öruggum heimildum, en heimildarmaður þeirra segir að konuna hafi sett hljóða. „Hún varð stjörf“ segir heimildarmaður Akureyrar vikublaðs sem grunar að konan hafi ekki sofið mikið í nótt.

Vinningshafans hafði verið leitað í nokkrar vikur þar sem enginn hafði gefið sig fram. Af viðbrögðum konunnar að dæma er ljóst að hana grunaði ekki að hún væri vinningshafinn sem leitað var að.

Akureyri vikublað greinir frá.


Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.