Ásdís Ólafsdóttir heimspekinemi og aðstoðarkona Þóru Arnórsdóttur, segist hneyksluð á viðbrögðum fólks við laginu „Sameinumst“ sem hjónin Fjóla Ólafsdóttir og Þorsteinn Eggertsson sendu inn á Youtube í gær. „Við höfum hringt í þau og hvatt þau til að setja lagið aftur inn á netið,“ segir Ásdís. „Okkur finnst þetta svo fyndið og skemmtilegt. Þóra og Svavar eru meira að segja að hugsa um að gera lagið að hringitóninum sínum.“
„Það hefur svoleiðis verið drullað yfir fólkið í myndbandinu, hringt í það og drullað yfir það persónulega. En Þóra er ekki vörumerki. Þetta var sjálfsprottið og skemmtilegt framtak sem var ekki gert í neinu samráði við Þóru né kosningastjórann og okkur finnst þetta bara dásamlegt. Fólkið fékk hins vegar yfir sig holskeflu af dónalegum og andstyggilegum athugasemdum,“ segir Ásdís og bætir því við að þarna sé á ferðinni fólk sem tekur sjálft sig ekki of alvarlega. „Þetta endaði með því að þau voru svo hrædd um að skaða framboðið að þau tóku myndbandið út af netinu.“
Höfundur lagsins er Fjóla Ólafsdóttir, en textann samdi Þorsteinn Eggertsson sem leikur hljómsveitarstjóra í myndbandinu.
Í samtali við DV minnist Ásdís einnig á Þórudaginn: „Þórudagurinn var ekki á vegum framboðsins heldur hugmynd sem kom upp hjá sjálfboðaliðum um allt land. Framboðið hjálpaði til með því að halda skrá yfir viðburðina, senda upplýsingar til þeirra sem vildu. Þetta er hægt þegar fólk stendur saman.“

Blóðugt uppgjör í Seljahverfi
Alþingiskosningar 2013