Jóhann Páll Jóhannsson
johannp@dv.is
20:59 › 26. júní 2012
„Ég ætla að styðja Ólaf. Og það er fyrst og fremst út af henni Dorrit,“ sagði Snorri Óskarsson, kenndur við Betel, í samtali við DV.
„Ég held að Ísland njóti blessunar af því að Dorrit er gyðingur, og ég vil blessa Ísrael og blessa gyðingana,“ sagði Snorri og bætti því við að Dorrit yrði Íslendingum til góðs, bæði á efsta degi og allt fram að honum.
Þóra Arnórsdóttir er eini forsetaframbjóðandinn sem hefur lýst því yfir að hann aðhyllist ekki kristna trú. Snorri segist velta því fyrir sér hvernig Þóra hyggist vera verndari íslensku þjóðkirkjunnar sem forseti Íslands. „Er hún ekki að dæma sig úr leik með þessari skoðun?“ spurði Snorri. Að hans mati er Þóra nú í afar erfiðri stöðu.

Blóðugt uppgjör í Seljahverfi
Alþingiskosningar 2013