Latur smali dæmdur í fjársekt

Tók ekki fulla þátt í smölun haustið 2010

Sauðfjárbóndi hefur verið dæmdur til að greiða Djúpavogshreppi kostnað sem hlaust af því að hann tók ekki fullan þátt í smölun haustið 2010. Hreppunum reiknaðist til að „smalinn“ hefði vanrækt að senda menn í göngur í sjö skipti og því sloppið við 15 dagsverk.

Þá tilkynnti hann engin forföll tvo gangnadaga og féllu þess vegna niður sex dagsverk til viðbótar. Hreppurinn krafði bóndann um heilar 360 þúsund krónur vegna þessa en dómurinn hafnaði vel flestum kröfum hreppsins. Dómurinn taldi hinsvegar sannað að bóndinn hefði vanrækt fjallskilaskyldu tvo daga. Hreppurinn fékk því 90 þúsund krónur upp í upphaflega kröfu.


Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.