Hannes ósáttur við tón í bréfi Svavars

Svavar Halldórsson sendi Hannesi Hólmsteini bréf um miðja nótt

Svavar Halldórsson, eiginmaður Þóru Arnórsdóttur forsetaframbjóðanda, sendi Hannesi Hólmsteini Gissurarsyni tölvupóst í nótt þar sem hann spurði hvort sá síðarnefndi bæri ábyrgð á nýlegum skrifum á amx-vefnum. Mikið hefur verið fjallað um framboð Þóru í fuglahvísli Amx að undanförnu og virðist sem Svavar hafi verið ósattur við skrifin. Hannes segir frá þessu í nýju bloggi á Pressunni.

Hannes segist hafa séð það í morgun, þegar hann skoðaði tölvupóstinn sinn, að þar væru skilaboð frá Svavari: „Sæll. Er það rétt sem menn segja að þú berir ábýrgð á lygunum sem birtast undir fuglahvísli á AMX?“ Hannes segist hafa svarað um hæl. „Sæll. Ég hef verið erlendis og kom til landsins á laugardagskvöld. Ég hef hvergi látið í ljós neina skoðun á þessu forsetakjöri og því síður skrifað neitt um það á amx.is. Ég kann satt að segja ekki við þann tón, sem er í þessari orðsendingu þinni, þótt send sé klukkan hálfþrjú um nótt.“

Þá spurði Hannes Svavar hvar umræddar lygar væri að finna á vef Amx. „En hvar eru lygarnar? Að Þóra hafi verið í Alþýðuflokknum eins og segir á amx.is? Eða kennt í stjórnmálaskóla Samfylkingarinnar eins og þar segir líka? Hið fyrra hefur ekki verið vefengt. Og í auglýsingu í fjölmiðlum um stjórnmálaskóla Samfylkingarinnar 2002 var Þóra sögð kennari þar. Eru það ósannindi? Hver ber þá ábyrgð á þeim? Helgi Hjörvar, skólastjórinn? Munuð þið Þóra fordæma slík vinnubrögð Samfylkingarinnar?“ Svo virðist sem Svavar hafi ekki ennþá svarað spurningum Hannesar, og alls óljóst hvort hann geri það.


Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.