Prófessor: Opið bókhald er „kosningataktík“

Gunnar Helgi gerir lítið úr kröfum um opið bókhald

Gunnar Helgi Kristinsson, prófessor í stjórnmálafræði, lítur á kröfur Herdísar Þorgeirsdóttur og Andreu Jóhönnu Ólafsdóttur um opið bókhald sem „kosningataktík.“ Þetta kom fram í sjónvarpsfréttum RÚV í kvöld.

„Ég held það megi alveg segja að krafan um opið bókhald sé tilraun, auðvitað þeirra sem hafa litla peninga, til þess að snúa þeim veikleika sinnar í baráttu sér í hag og gera kosningabaráttu þeirra sem hafa úr meiru að spila tortryggilega ef hægt er,“ segir Gunnar Helgi enn fremur.

Hann bendir á að Ríkisendurskoðun fari ekki yfir gögn frambjóðenda fyrr en eftir kosningar og þangað til hafi það litla þýðingu að opna bókhaldið.


Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.