Sumir kannast eflaust við það að býsnast yfir því hversu fáránlega augljós svokölluð Nígeríusvindl geta verið. Fólki er boðið gull og grænir skógar ef það bara millifærir svo og svo háa upphæð inn á reikning sendandans – sem segist jafnan vera konungssonur eða eitthvað í þá áttina.
Jón Gnarr og Sigurjón Kjartansson vöktu heldur betur athygli á Nígeríusvindli þegar þeir höfðu samband við einn slíkan í beinni útsendingu í útvarpsþættinum Tvíhöfða. Nígeríusvindlið þar varð að eins konar sápuóperu sem engan endi virtist ætla að taka.
Auðveld bráð
Ný rannsókn bendir til að Nígeríusvindl séu sett upp eins fáránlega og raun ber vitni af einfaldri ástæðu. Með því að útiloka það fólk sem les póstsendingar með snefil af gagnrýni geta svindlararnir verið vissir um að ef einhver svarar póstinum sé sá hinn sami auðveld bráð.
Með þá vitneskju eiga svindlararnir auðveldara með að vefja þessum einstaklingum um fingur sér og þurfa ekki að eyða óþarfa tíma í frekari útskýringar. Sá sem í upphafi féll fyrir hinni ótrúlegu sögu Nígeríusvindlarans, heldur yfirleitt áfram að trúa, og það þótt sagan verði jafnan ótrúlegri og ótrúlegri.
Náði 164 milljónum
Nígeríusvindl eru í einföldu máli þannig byggð að bréf eru send á tölvupóstfang fjölda fólks þar sem þeim er lofað milljónum króna – ef þau bara millifæra smá upphæð inn á ákveðinn reikning fyrst. Þau bera þetta nafn vegna þess að fyrstu svikin af þessu tagi bárust frá Nígeríu. Það er alls ekki þar með sagt að öll slík svindl séu upprunninn þaðan, enda geta þau komið hvaðan sem er úr heiminum.
Þau eru einföld í framkvæmd en svindlarinn sendir einfaldlega ótrúlegt bréf á nógu mörg tölvupóstföng (milljónir) og bíður síðan viðbragða. Vegna þess hversu ótrúlegt hið upprunalega bréf er veit hann að að þeir sem svara eru auðveldir viðureignar. En er þetta nokkuð annað en nokkrir þúsundkallar fyrir svindlarann? Þannig spyrja eflaust margir. Samkvæmt frétt ComputerWorld sem fjallar um rannsóknina má græða fúlgur af þessum svindlum. Þannig var nígerískur maður dæmdur í 12 ára fangelsi fyrir tveimur árum fyrir að hafa svikið 164 milljónir út úr auðtrúa fórnarlömbum sínum.
Hvíla í sigti svindlaranna
Samkvæmt niðurstöðum rannsóknarteymis á vegum rannsóknarstofnunar Microsoft leita Nígeríusvindlarar að hinum auðtrúuðustu af öllum til þess að græða sem mest.
Það var Cormac Herley nokkur sem leiddi vinnu rannsóknarteymisins en niðurstöðurnar voru að mörgu leyti áhugaverðar.
Þar kom meðal annars í ljós að með því að bera fram allt að því kómískar sögur um seðlabúnt í bankahólfum Vestur-Afríku séu svindlararnir að herja á réttan markhóp. Það sem hringi viðvörunarbjöllum hjá langflestum sé einmitt það sem dragi óskabráðina inn í svindlið. Í niðurstöðum rannsóknarinnar kemur einnig fram að vel flestir viti og hafi heyrt um slík svindl. Hinir sem ekkert viti og ekki séu með á nótunum, hvíli í sigti svindlarana.

Hemmi Gunn fallinn frá