„Hér er líklega komin ein versta grein ársins. Lágt skotið og af ósanngirni,“ skrifar Hallgrímur Helgason rithöfundur um leiðaraskrif Inga Freys Vilhjálmssonar fréttastjóra DV. Í leiðaranum sem ber heitið „Salan á Þóru“ gagnrýnir Ingi framsetningu framboðs Þóru Arnórsdóttur forsetaframbjóðanda. Ingi segir framboð hennar spila á „dýrkun margra Íslendinga á Vigdísi Finnbogadóttur.“ Þá segir Ingi enn fremur að ímynd Þóru virki ekki sannfærandi. „Þessi hannaða ímyndarsköpun er því tímaskekkja Þóru og getur ekki annað en komið sér illa fyrir hana af því hún er tilbúningur, óeinlæg og þar með tilgerðarleg.“
Skrifin segir Hallgrímur vera „dulda kvenfyrirlitningu“ og að með honum hafi Þóra fengið að kynnast glerþakinu. „Hér hefur Þóra semsagt rekið sig í hið fræga glerþak.“ Hugtak sem gjarnan er notað til að lýsa þeim ósýnilegu hindrunum sem mæta konum á atvinnumarkaði sem og í stjórnmálum og þátttöku í samfélaginu. „Áður hafði hún verið gagnrýnd fyrir að vera ekki nógu sýnileg, nú er hún með "auglýsingatilburði". Og kynningin á Þóru er nákvæmlega í takt við hennar persónu og stíl. Hún ætlar að verða forseti allra og það er einmitt það sem stór hluti þjóðarinnar vill.“ Hallgrímur segir að almenningur óski sér hlés frá lýðsskrumi og látum.
„Það versta við þessa grein er þó hin dulda kvenfyrirlitning sem í henni flest, sem er enn sorglegri fyrir þá sök að höfundurinn gerir sér engan veginn grein fyrir henni. Ef kona dembir sér í slag af fullum krafti og notar til þess öll þau samskiptatæki sem bjóðast í samfélagi okkar er hún sögð vera að "selja" sig.“ Hann spyr hvers vegna slíkar greinar hafi ekki sést um aðra frambjóðendur. „man einhver eftir grein sem hét „Salan á Gnarr“ eða Svipaðri gagnrýni á Ólaf Ragnar Grímsson á sínum tíma?“ til samanburðar rifjar Hallgrímur upp umræðu um sölumennsku rithöfundarins Yrsu Sigurðardóttur og telur að Arnaldur Indriðason hafi ekki þurft að takast á við álíka gagnrýni í sama mæli sökum kyns. „Semsagt: Konur mega vera ákveðnar "kjarnakonur" upp að vissu marki, en þegar þær eru komnar yfir 30% og þurfa að leita allra leiða til að ná í 10% í viðbót, þá eru þær orðnar "íhaldssamar dúllur" (hér er blaðamaður aðeins hársbreidd frá því að segja "skrautdúkka"). Það sem er þó allra verst við þetta slæma innlegg er sú staðreynd að viku fyrir kosningar er það lítið annað en væl á myllu ÓRG,“ skrifar Hallgrímur.
Áhugasamir geta lesið leiðara DV í heild með því að smella hér.

Hemmi Gunn fallinn frá