„Hef ekki tekið við einni einustu krónu“

Hannes Bjarnason ætlar að opna bókhaldið sitt

Hannes Bjarnason sagði í samtali við DV að hann hygðist opna bókhaldið sitt eftir helgi. Hann fullyrðir þó að hann hafi ekki tekið við einni einustu krónu og framboð hans sé ekki drifið áfram af neinum fjármagnsöflum.

Ari Trausti segist ætla að feta hina lögboðnu leið og opna bókhaldið eftir kosningarnar. Hann hafi ekki ráðrúm til að safna saman nöfnum allra þeirra sem styrkt hafi framboðið hans og biðja hvern og einn um leyfi fyrir því að nöfnin verði birt. Hins vegar kom fram í samtali við Rúnar Þór Guðbrandsson, sem heldur utan um fjármál Ara Trausta, að í kosningasjóð hans hafi safnast um það bil 600 þúsund krónur og séu nær öll framlögin frá einstaklingum.

Ítarlega er fjallað um fjárframlög til forsetaframbjóðenda í DV dagsins í dag. Áskrifendur geta smellt á meira og lesið umfjöllun blaðsins í heild.

Meira »


Gleymt lykilorð?

Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.