Bakkabræður tóku 8,9 milljarða í arð

Vilja kaupa Bakkavör aftur með reiðufé

Bræðurnir Lýður og Ágúst Guðmundssynir, fyrrverandi aðaleigendur eignarhaldsfélagsins Exista, fengu samtals tæplega 8,9 milljarða króna arð út úr félaginu á árunum fyrir hrun. Arðgreiðslurnar voru vegna bókfærðs hagnaðar Exista á árunum 2005 til 2007. Engar arðgreiðslur voru hins vegar greiddar út úr félaginu árin 2008 og 2009, samkvæmt ársreikningi félagsins fyrir árið 2009.

Bræðurnir, sem yfirleitt eru kenndir við matvælaframleiðslufyrirtækið Bakkavör sem þeir stofnuðu á níunda áratugnum, reyna þessa dagana að kaupa Bakkavör af núverandi eigendum þess, Arion banka og nokkrum lífeyrissjóðum. Bræðurnir misstu yfirráð sín yfir Bakkavör í kjölfar efnahagshrunsins árið 2008 en stýra því enn sem forstjóri og stjórnarformaður. Ágúst og Lýður keyptu hlutabréf í félaginu fyrir fimm milljarða króna fyrir skömmu og eiga nú rösklega fjórðungshlut í því. Áhugi þeirra stendur hins vegar til að eiga Bakkavör einir og hafa þeir gert kauptilboð í allt hlutafé félagsins upp á 16 milljarða króna, líkt og kom fram í fréttum Stöðvar 2 á föstudaginn. Í umfjöllunum fjölmiðla um kauptilboð Bakkabræðra hefur komið fram að þeir hyggist fjármagna viðskiptin með reiðufé en ekki með lánsfé frá bönkum.

Meira »


Gleymt lykilorð?

Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.