VÍS-milljarðar renna loksins til Skinneyjar

Fjölskyldufyrirtæki Halldórs fær 5,6 milljarða frá dótturfélagi

Eignarhaldsfélag í eigu Skinneyjar-Þinganess á Höfn Hornafirði, sem hagnaðist um 2,6 milljarða króna á viðskiptum með hlutabréf í Vátryggingafélagi Íslands (VÍS) á árunum 2002 til 2006, hefur nú runnið inn í útgerðarfélagið. Félagið heitir Fjörur ehf.

Skinney-Þinganes er í eigu náinna ættingja Halldórs Ásgrímssonar, fyrrverandi utanríkis- og forsætisráðherra, og á hann sjálfur hlut í því. Halldór beitti sér fyrir því sem ráðherra árið 2002 að ríkisbankinn Landsbankinn seldi 50 prósenta hlut sinn í VÍS áður en gengið var frá sölunni á bankanum til eignarhaldsfélagsins Samson. Skinney-Þinganes var einn af þeim aðilum sem keypti þessi bréf og hagnaðist ævintýralega á þeim.

Samruni Fjara og Skinneyjar-Þinganess hefur verið tilkynntur til fyrirtækjaskrár ríkisskattstjóra, ásamt reyndar samruna þriggja annarra eignarhaldsfélaga. Þetta þýðir í reynd að Skinney-Þinganes hefur nú loksins tekið við milljörðum sem félagið græddi í dótturfélagi sínu á viðskiptunum með hlutabréfin í VÍS. Orðrétt segir um samrunann hjá fyrirtækjaskrá: „Fyrirhugaður samruni við Skinney-Þinganes hf. ásamt Skarðsfirði ehf., Fjallaskipum ehf. og Festarfelli ehf. samkvæmt samrunaáætlun dags. 4.6.2012.“

Á 5,6 milljarða

Félagið Fjörur ehf. á 5,6 milljarða króna eignir samkvæmt ársreikningi félagsins fyrir árið 2010. Á móti þessum eignum eru skuldir upp á einungis 60 milljónir króna. Fjörur átti hlutabréf í eignarhaldsfélaginu Hesteyri, á móti Kaupfélagi Skagfirðinga.

Í minnisblaði sem Ríkisendurskoðun vann árið 2005 um hæfi Halldórs Ásgrímssonar til að fjalla um söluna á hlut ríkisins í Búnaðarbankanum kemur fram að Skinney-Þinganes hafi eignast hlutabréf í VÍS í nóvember árið 2002. Í ágúst það ár keypti Skinney-Þinganes 50 prósenta hlut í Hesteyri hf. af Kaupfélagi Skagfirðinga.

Á sama tíma eignaðist Hesteyri hlutabréf í eignarhaldsfélaginu Keri og nam hlutabréfaeignin um 22 prósentum. Ker átti síðar eftir að verða einn af kaupendum Búnaðarbankans og var Ólafur Ólafsson stærsti hluthafi þess. Hesteyri skipti svo á þessum hlutabréfum í Keri og 25 prósenta hlut í VÍS. Tæplega tveimur vikum síðar, þann 29. ágúst, var gengið frá því að að Landsbankinn seldi S-hópnum helmingshlut sinn í VÍS. Þá var S-hópurinn orðinn einráður í vátryggingafélaginu og eigandi alls hlutafjár í því. Skinney-Þinganes eignaðist því bréfin í VÍS eftir að búið var að ganga frá sölunni á hlut Landsbankans í VÍS.

Liður í einkavæðingunni

Samkvæmt skrifum um einkavæðingu bankanna var þessi sala á VÍS-bréfum Landsbankans liður í einkavæðingu bankanna: S-hópurinn vildi eignast Landsbankann, líkt og Samson, en til að hópurinn sætti sig við að fá einungis Búnaðarbankanum þurfti hópurinn að fá eitthvað í staðinn. VÍS-hluturinn gegndi þessu hlutverki og sætti Framsókn og S-hópinn við sinn hlut í einkavæðingunni vegna þessarar sölu. Óánægja S-hópsins með þá staðreynd að Samson fékk að kaupa Búnaðarbankann birtist meðal annars í því að Ólafur Ólafsson, einn af stjórnendum S-hópsins, hringdi í Halldór Ásgrímsson og skammaði hann eftir að þessi niðurstaða lá fyrir.

Halldór Ásgrímsson hafði svo aftur bein afskipti af þessu einkavæðingarferli. Líkt og kom fram í úttekt um einkavæðingu bankanna í Fréttablaðinu árið 2005 hafði Halldór Ásgrímsson áður hótað því að hætta við einkavæðingarferli bankanna ef hlutur Landsbankans í VÍS yrði ekki seldur.

Skipt á VÍS-bréfum og Exista

Hesteyri hélt utan um hlutabréfin í Vátryggingafélagi Íslands næstu árin þar á eftir. Um mitt ár 2006, keypti eignarhaldsfélagið Exista allt hlutafé í Vátryggingafélagi Íslands og greiddi fyrir með hlutabréfum í Exista. Þar á meðal var fjórðungshlutur Hesteyrar í tryggingafélaginu. Hesteyri fékk í staðinn 5,7 prósenta hlut í Exista.

Í lok desember 2006 var tilkynnt um það í Kauphöll Íslands að Hesteyri hefði selt 1,91 prósents hlut í Exista fyrir 4,9 milljarða króna. Gengið á bréfunum var þá 23. Bókfærður hagnaður Fjara af viðskiptunum með bréfin í Exista var rúmlega 2,6 milljarðar króna. Orðrétt segir um söluna í ársreikningi Fjara: „Félagið seldi á árinu allan eignarhlut sinn í Exista, í árslok voru um tveir þriðju hlutar söluandvirðisins ógreiddir og hafa því ekki áhrif á sjóðstreymi.“ Hagnaðurinn af starfsemi félagsins þetta ár var einnig 2,6 milljarðar króna og námu eignir þess rúmlega 6,2 milljörðum króna. Stjórnarmenn í Fjörum á þessum tíma voru Ingólfur Ásgrímsson, bróðir Halldórs, Aðalsteinn Ingólfsson, bróðursonur Halldórs, og Gunnar Ásgeirsson.

Nú hefur þessi hagnaður af hlutabréfunum í VÍS loksins runnið inn í Skinney-Þinganes og mun eignarhaldsfélagið Fjörur ehf. verða afskráð í kjölfarið á þessari sameiningu.


Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.