Sakar Gillzenegger um að vera hræsnari

Jónas segir yfirlýsingu Egils vera án samhengis

Ritstjórinn Jónas Kristjánsson hefur svarað yfirlýsingu Egils „Gillzenegers“ Einarssonar, þar sem Egill kvartaði yfir umræðu um nauðgunarkæru á hendur honum.

Á bloggsíðu sinni fullyrðir Jónas að Egill sé hræsnari vegna yfirlýsingarinnar. „Nú segir hann blákalt sig telja nauðgun vera alvarlegan glæp. Samt getur hann ekki hunzkast til að manna sig upp í afsaka fortíð sína í blogginu. Þar varð hann alræmdur fyrir að hvetja til nauðgana og hópnauðgana nafnkunnra kvenna. Í blogginu notaði hann ógeðslegt orðbragð kynsveltra smástráka. Ekki hefur hann beðið fyrirgefningar á þessari fortíð.“

Þaggað niður í konum með samförum

Gillzenegger hefur í pistlaskrifum sínum og víðar viðhaft orðbragð um nafngreindar konur, sem gagnrýnendur hans hafa sagt ýta undir réttlætingar fyrir nauðgunum. Í pistli á „Fréttastofu Gillz“ árið 2007 greindi hann frá því að hann vildi senda menn á nafngreindar konur til að hafa við þær samfarir svo þær myndu hætta að tjá sig opinberlega.

Hann talaði meðal annars um að „gefa þessum rauðsokkum einn granítharðan í háruga bílskúrinn til þess að þagga niður í þeim“. Þá tilnefndi hann nafngreinda menn í að „tittlinga“ framkvæmdastjóra þingflokks vinstri grænna. Þá sagði kallaði hann alþingiskonu portkonu og sagði hana „þurfa lim og það strax“ og „dugar ekkert annað en lágmark tveir harðir“. Um annan alþingismann sagði hann: „Það er kominn tími til að þagga niður í henni endanlega og munu þessir herramenn sem Fréttastofan taldi upp áðan fylla hana eins og hátíðarkalkún. Það mun vonandi vera til þess að hún steingrjóthaldikjafti og fari að haga sér.“

Bað konur afsökunar

Í viðtali við helgarblað DV árið 2010 bað Egill konur afsökunar á ummælum sínum, en réttlætti þau. „Konur í kvennabaráttu mega ekki gleyma því að hafa húmor og það má alveg gagnrýna aðferðir þeirra. Af hverju má ég ekki vera svolítið beittur í mínum húmor þegar kemur að vissum feministum? Mér finnst einfaldlega fyndið hvað þær eru geðstirðar og hátíðlegar í fasi, þær bjóða upp á að ég geri grín að þeim,“ sagði hann.

Ósáttur við umræðu

Gillzenegger kvartaði undan opinberri umræðu um nauðgunarkæru á hendur sér, eftir að kærunni var vísað frá í síðustu viku. Þar ýjaði hann að því að andstæðingar hans hefðu vonað að nauðgun hefði átt sér stað. „Illgirnin og hefndarhugurinn hjá mörgum þeirra sem tjáðu sig um mig í tengslum við þetta mál ætti að vera öllum íhugunarefni. Háskólakennarar, rithöfundar, embættismenn, stjórnmálamenn og fjölmargir aðrir gengu miklu lengra en eðlilegt getur talist, svo mjög að á tímabili fékk ég það hreinlega á tilfinninguna að það væri einlæg von nokkurra þeirra sem dómharðastir voru, að nauðgun hefði átt sér stað! Þetta ömurlega mál skyldi nýtt sem réttlæting eða vopn í einhverskonar „hugmyndabaráttu“, svo ósmekklega sem það nú hljómar. Eða sem vopn í höndum þeirra sem einhverra hluta vegna töldu sig eiga eitthvað sökótt við mig. Örlög og heill stúlkunnar virtust aukaatriði. Eða, hvað annað er hægt að lesa út úr ummælum Sóleyjar Tómasdóttur, borgarfulltrúa Vinstri grænna, á Facebook, þegar hún sagði: „Nú er bara að krossa fingur“ og tengdi frétt þess efnis að Ríkissaksóknari væri kominn með málið á sitt borð? Krossa fingur um hvað? Að stúlkunni hafi verið nauðgað eða að saklaust fólk yrði ákært?“

Jónas Kristjánsson er hins vegar ekki sáttur við yfirlúysinguna. „Ætti hann þó að fara skríðandi á fjórum fótum suður til Rómar sér til forláts. Svo birtir hann alls ómerka yfirlýsingu, sem ekki er í neinu samhengi við hans langa og ljóta ritferil.“


Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.