Berglind: Slegin í rot og dregin upp í bíl

Berglind lýsir seinni árásinni sem enn er óupplýst

Árásirnar voru reyndar tvær en önnur þeirra, sú seinni, er óupplýst. Hún átti sér stað nokkrum dögum eftir þá fyrri, eða snemma á nýársmorgun. „Ég féll á gamlárskvöld. Mér hafði liðið illa eftir árásina og fékk mér í glas. Svo vorum við kærastinn minn að fara sofa heima hjá honum um nóttina en þá var síminn hans alltaf að hringja. Eftir á þá sér maður hvað þetta var planað,“ segir hún og hristir höfuðið. Hún vill meina að einhver hafi ráðgert það að fá hana út úr íbúðinni og beðið hafi verið eftir henni fyrir utan.

„Það hringdu einhverjar fjórar mismunandi manneskjur í hann og sögðu ógeðslega hluti um mig. Að ég væri svona og hinsegin - bara eitthvað algjört bull,“ segir hún. Berglind og kærastinn hennar höfðu aðeins verið saman í um tvo mánuði þegar þetta gerist.

„Þetta endar á því að hann segir við mig:„Berglind ég get þetta ekki.“

Ég rýk þá út og þá er komið aftan að mér og ég slegin í rot. Það var greinilega beðið eftir mér í skoti sem er þarna undir stiganum. Ekki nóg með það heldur er ég sett í baksæti á bíl og veit ekkert hvað gerist frá þeim tímapunkti. Síðan er ég dregin út úr bílnum á planinu við Borgarspítalann í níu stiga frosti. Þar var ég skilin eftir í mjög slæmu ásigkomulagi og finnst eftir klukkutíma. Ég er búin að horfa á þetta á upptöku frá spítalanum,“ segir hún.

Þetta er hluti úr viðtali við Berglindi Steindórsdóttur í helgarblaði DV. Berglind er fórnarlamb hrottalegrar árásar í Hafnarfirði þann 22. desember síðastliðinn. Dæmt var í málinu í vikunni og í viðtalinu segir Berglind frá aðdraganda árásarinnar, árásinni og lífinu eftir hana.

Meira »


Gleymt lykilorð?

Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.