Ari Trausti: Beðinn um að hætta við

Stuðningsfólk Ara sakar stuðningsfólk Þóru um að vilja Ara úr baráttunni

Hefur þú ákveðið hvaða frambjóðanda þú ætlar að kjósa á laugardag?




Sjá niðurstöður

Svo virðist sem stuðningsmenn Þóru Arnórsdóttur hafi leitast eftir því að Ari Trausti Guðmundsson dragi framboð sitt til forseta til baka, ef marka má yfirlýsingu frá þeim síðarnefndu. „Nokkuð hefur borið á því að stuðningsmenn Þóru séu að leitast eftir því að Ari Trausti dragi framboð sitt tilbaka og lýsi yfir stuðningi við hana einungis svo ÓRG verði ekki endurkjörinn.“ Þetta er á meðal þess sem kemur fram í nýrri stöðuuppfærslu frá kosningastjórn framboðs Ara Trausta Guðmundssonar.

„Ari Trausti ber ekki ábyrgð á orðum né gerðum annarra frambjóðenda,“ segir meðal annars í svari stuðningsfólks Ara við þessum umleitunum. Eins og skoðanakannanir benda til virðist sem Þóra Arnórsdóttir og Ólafur Ragnar Grímsson séu þau tvö frambjóðenda sem hafi hvað mest fylgi, en Ari Trausti kemur þar á eftir. Sé það rétt sem stuðningsfólk Ara Trausta heldur fram, að stuðningsfólk Þóru reyni nú að fá Ara Trausta til að bakka úr framboði, er hugmyndin líklega sú að fylgi Ara myndi færast að megninu til yfir á Þóru. Þetta virðist þó ekki vera inni í myndinni ef marka má nýlega stöðuuppfærslu kosningastjórnar Ara Trausta á Facebook.

„Frá kosningastjórn: Nokkuð hefur borið á því að stuðningsmenn Þóru séu að leitast eftir því að Ari Trausti dragi framboð sitt tilbaka og lýsi yfir stuðningi við hana einungis svo ÓRG verði ekki endurkjörinn. Við segjum því: Ari Trausti ber ekki ábyrgð á orðum né gerðum annarra frambjóðenda. Þætti þeim við hæfi að við stuðningsmenn Ara færum inn á síðu Þóru og hvettum hana til að draga framboð sitt tilbaka og styðja Ara Trausta þar sem menn hafa sagt að hann sé hugsanlega sá eini sem geti fellt sitjandi forseta og sátt náðst um? Það þykir okkur ekki.“

Þá segir þar ennfremur: „Þeir sem hafa litið hér inn í þessum tilgangi segja þó að Ari Trausti sé góður kostur! Við hvetjum fólk til að fylgja eigin sannfæringu og kjósa þann sem þeim þykir hæfastur í embættið. Láta ekki skipa sér í fylkingar, kjósa MEÐ einum en ekki aðeins til að kjósa á MÓTI öðrum. Við trúum því að aðeins þannig náist sátt um næsta forseta og að þjóðin verði ekki áfram klofin í tvær fylkingar. Ari Trausti og María eru TRAUST sameiningartákn sem þjóðin getur verið einhuga um. Þau munu vera okkur til SÓMA hérlendis sem erlendis.“


Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.