„Ég er ekki að sækjast eftir stöðu bæjarstjóra og ég er heldur ekki að fara í framboð,“ segir útvarpsmaðurinn knái Heimir Karlsson í samtali við DV.
Hann sá sig knúinn til þess að birta tilkynningu á Facebook eftir að fjöldi fólks hafði haft samband við hann og spurt hann út í umsókn hans um bæjarstjórastöðu í sveitarfélaginu Garði á Reykjanesi. Facebook-tilkynning Heimis var svohljóðandi: „Af gefnu tilefni vil ég taka fram að ég er EKKI einn umsækjenda um bæjarstjórastólinn í Garði. Hef verið mikið spurður í dag en ég óska nafna mínum góðs gengis :)“
Á meðal 30 umsækjenda um stöðu bæjarstjóra í Garði er Heimir Karlsson. Sá sem þekktastur er undir nafni þessu er sá ágæti útvarpsmaður í Bítinu á Bylgjunni. Eftir að opinberað var hverjir sækja um hefur síminn ekki stoppað hjá útvarpsmanninum sem á endanum neyddist til að setja yfirlýsingu á Facebook og láta þess getið í þætti sínum að hann hefði ekki áhuga á bæjarstjórastólnum.
„Þetta er auðvitað ekki algengt nafn þannig að það er kannski ekki óeðlilegt að fólk hafi tengt þetta mér,“ segir Heimir í samtali við DV. Hann segir fyrirspurnirnar ekki hafa stoppað og því hafi hann þurft að bregðast við. „Ég sá mig tilneyddan til þess að setja þetta inn á fésbókina, bara smá status, og minnast á það í morgunútvarpinu í morgun, að ég væri ekki að sækjast eftir stöðu bæjarstjóra í Garði.“
Heimir segir gott að málið sé loksins komið á hreint og bætir við í léttum dúr: „Með fullri virðingu fyrir starfinu.“ Hann segist ekki vera á leiðinni úr útvarpinu. „Hjá mér er bara allt í lagi eins og staðan er, það er bara fínt.“

Stóra IKEA-málið
Mannránin í Cleveland
Harmleikur á Egilsstöðum
Alþingiskosningar 2013