Hinn 26 ára Jiang Xiaoshan lést í vikunni eftir að hafa vakað samfleytt í ellefu sólarhringa til að fylgjast með Evrópumótinu í knattspyrnu. Vegna tímamismunar vakti maðurinn allar nætur yfir boltanum en þetta gerði hann þrátt fyrir að þurfa að mæta til vinnu á daginn. Eftir ellefu svefnlausar nætur, 1890 mínútur af fótbolta auk neyslu áfengis og tóbaks fór Jiang Xiaoshan í sturtu og sofnaði þar svefninum langa.
Þetta er ekki í fyrsta skipti sem kínverskur fótboltaáhugamaður hlýtur skaða af of miklu sjónvarpsglápi. Svipuð tilfelli komu upp í kringum HM í Þýskalandi árið 2006 og HM í Suður-Afríku árið 2010.
Svefnleysi af völdum tölvuleikjanotkunar og sjónvarpsgláps er sagt vera vaxandi vandamál í suðurhluta Asíu. Til að mynda hyggjast stjórnvöld í Suður-Kóreu stemma stigu við vandamálinu með því að takmarka tímann sem íbúar landsins geta spilað tölvuleiki á netinu.

Blóðugt uppgjör í Seljahverfi
Alþingiskosningar 2013