„Þeim manni þótti samþykki ekki sexí“

Köstum skömminni á haugana

„Ég þreytist ekki á að segja hvað það að vera femínisti skiptir miklu máli þegar maður vinnur úr reynslunni. Bara það að þekkja helstu einkenni brotaþola hjálpar einmitt til við að kasta skömminni á haugana,“ segir Þyrnigerður Láfa sem er framhleypin og hispurslaus ung kona sem vill kynfrelsa fólk.

Þyrnigerður kemur fram undir dulnefni sökum þess að hún skrifar píkusögur á netinu sem oft og tíðum verða persónulegar. Sögurnar skrifar hún, þrátt fyrir að hafa sjálf gengið í gegnum erfiða reynslu af kynferðisbroti og nauðgunum. Ástæðan fyrir dulnefninu hefur því ekkert með brotin gegn henni að gera, heldur frelsi hennar til að tjá sig áfram á netinu.

Leitaði huggunar hjá vini

Eftir alvarlegt kynferðisbrot var Þyrnigerði tvisvar sinnum nauðgað. Í fyrra skiptið var henni nauðgað af besta vini sínum. „Ég leitaði huggunar hjá besta vini mínum sem nauðgaði mér, svo ég hætti nú örugglega að vera leið,“ segir hún. Í seinna skiptið var hún stödd á sveitabæ og það var ókunnugur maður sem braut gegn henni. „Þeim manni þótti samþykki ekki sexí.“

Þyrnigerður er ein þeirra átta einstaklinga sem segja sögu sína í helgarblaði DV. Viðtalið í heild sinni geta áskrifendur DV lesið ef þeir velja meira

Meira »


Gleymt lykilorð?

Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.