„Þegar þessi risi vaknar þá er þetta alveg ótrúlegur her“

Stjórnarmaður LÍÚ segir sambandið í raun eina her landsins

„Þegar þessi risi vaknar þá er þetta alveg ótrúlegur her. Þetta er eiginlega eini herinn á Íslandi. Þegar við virkjum þennan her þá er hann ofboðslega öflugur, af því hann er bara um allt land, á öllum þjóðfélagsstigum, í öllum flokkum,“ er haft eftir stjórnarmanni LÍÚ í umfjöllun DV í dag. Ítarlega er fjallað um þau átök sem áttu sér stað að tjaldabaki við samninga stjórnar- og stjórnarandstöðu um þinglok.

Viðmælendur blaðsins benda á að þáttur útgerðarmanna í samkomulaginu sé ef til vill meiri en opinberlega er af látið. Stjórn LÍÚ hefur fundað nánast linnulaust að undanförnu vegna fyrirhugaðra breytinga á fiskveiðistjórnunarkerfinu. Á allavega einum slíkum fundi var samkomulag um þinglok til umræðu samkvæmt heimildum blaðsins.

Ítarlega er fjallað um átökin að tjaldabaki við samningsviðræður fulltrúa stjórnar- og stjórnarandstöðu um þinglok í DV dagsins í dag. Áskrifendur DV geta lesið umfjöllun blaðsins í heild með því að smella á meira.

Meira »


Gleymt lykilorð?

Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.