Berglind Steindórsdóttir varð fyrir hrottalegri árás í Hafnarfirði í desember síðastliðnum og annarri árás nokkrum dögum seinna. Í vikunni voru árásarmennirnir úr fyrri árásinni dæmdir. Árásin var hrottaleg en hún var með þeim hætti að fjórir einstaklingar réðust inn á heimili Berglindar í Hafnarfirði og misþyrmdu henni, líkamlega og kynferðislega. Undanfarna mánuði hefur Berglind verið í felum undir vernd lögreglunnar en stígur nú fram og segir frá tildrögum árásarinnar og hvernig líf hennar hefur breyst eftir hana.
Dómur í málinu féll á miðvikudaginn í Héraðsdómi Reykjaness en þá voru fjórir aðilar dæmdir fyrir árásina. Andrea Kristín Unnarsdóttir hlaut fjögurra og hálfs árs dóm fyrir sérstaklega hættulega líkamsárás og kynferðisbrot, Jón Ólafsson fékk fjögurra ára dóm fyrir sömu líkamsárás og kynferðisbrot sem og Elías Valdimar Jónsson. Óttar Gunnarsson hlaut svo tveggja ára dóm fyrir að hafa átt aðild að árásinni og fyrir að hafa ekki komið fórnarlambinu til bjargar. Einar Marteinsson, fyrrverandi formaður Hells Angels á Íslandi, var sýknaður af ákæru um að hafa skipulagt árásina. Þó að Berglindi sé nokkuð létt við það að dómur sé fallinn, þá veit hún að líf sitt verður aldrei samt - allavega ekki á næstunni.
Hún segir að í raun sé allt breytt eftir árásina. Dagarnir séu misjafnir. Suma daga finnist henni allt ómögulegt, aðra daga sé hún brattari. Hún fer ekki lengur út úr húsi án þess að vera vör um sig og veltir því sífellt fyrir sér hvort einhver fylgist með henni. Enda hafa henni borist hótanir eftir árásina. Einn daginn var kveikt í bílnum hennar. Það var fyrir nokkrum vikum síðan.
Fyrstu vikurnar eftir árásina íhugaði hún sjálfsvíg en með hjálp góðs fagfólks hefur henni tekist að komast á ágætis ról. Það er þó margt eftir og þó að líkamlegu sárin eftir árásina séu við það að gróa þá munu þau andlegu líklega gróa seint. Hún endurupplifir atburðinn oft og hefur verið greind með áfallastreituröskun. „Það er svo skrýtið - ég vakna oft upp á nóttunni við högg. Það er svo raunverulegt og tekur mig oft heillangan tíma að átta mig á að þetta hafi í rauninni bara verið draumur og það sé enginn inni hjá mér.“
Nánar er rætt við Berglindi í helgarblaði DV. Áskrifendur geta lesið allt viðtalið ef þeir velja meira hér fyrir neðan


Alþingiskosningar 2013
Blóðugt uppgjör í Seljahverfi