Það var tiltrú fulltrúa stjórnarflokkanna að samkomulagi um þinglok yrði náðm síðastliðinn föstudag. Formenn stjórnmálaflokkanna gengu til þingfunda með drög að samkomulagi sem í raun er sams konar og án efnislegra breytinga frá því samkomulagi sem skrifað var undir af Jóhönnu Sigurðardóttur forsætisráðherra og Steingrími J. Sigfússyni, ráðherra atvinnumála, seint á mánudag að kröfu Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar, formanns Framsóknarflokksins.
Sigmundur sagði opinberlega að ástæða þess að farið væri fram á skriflegan samning væri að ekkert traust væri á milli stjórnar- og stjórnarandstöðu. Þáttur Sigmundar í töfunum á samkomulaginu er þó samkvæmt heimildum DV meiri en hann vill af láta. Viðmælendur DV úr öllum flokkum hafa staðfest að formaður Framsóknarflokksins lét sig hverfa á föstudag eins og það var orðað, klukkustundum saman.
Sigmundur svaraði ekki símhringingum og lét, svo vitnað sé í orð stjórnarþingmanna, „eins og krakki“. Þá hafa viðmælendur blaðsins bent á að þáttur útgerðarmanna í samkomulaginu sé ef til vill meiri en opinberlega er af látið. Stjórn LÍÚ hefur fundað nánast linnulaust að undanförnu vegna fyrirhugaðra breytinga á fiskveiðistjórnunarkerfinu. Á allavega einum slíkum fundi var samkomulag um þinglok til umræðu samkvæmt heimildum blaðsins.
Ítarlega er fjallað um átökin bak við tjöldin við samningaumleitanir um þinglok Alþingis í helgarblaði DV. Áskrifendur geta lesið umfjöllun blaðsins í heild með því að smella á meira.


Blóðugt uppgjör í Seljahverfi
Eurovison 2013
Harmleikur á Egilsstöðum
Alþingiskosningar 2013