Risapáfagaukurinn Seifur sem stolið var aðfararnótt 17. júní frá dýragarðinum Slakka í Laugarási , hefur enn ekki komið í leitirnar.
Seifur er 12 ára risapáfagaukur af Araætt og hefur verið í láni á dýragarðinum undanfarið. Fuglar af þessari tegund geta náð allt að 80 ára aldri svo Seifur gæti átt langa ævi fyrir höndum. Þeir þykja greindir og eru miklar félagsverur.
Jóhanna Björk Halldórsdóttir, eigandi Seifs segist í samtali við DV hafa áhyggjur af Seifi, ekki síst í ljósi þess að hann hefur nú verið aðskilinn frá maka sínum til 11 ára, henni Merkúru. „Hann hefði aldrei farið úr búrinu sínu án hennar Merkúru. Hann labbaði aldrei neitt í burtu frá búrinu, það er bara hans heimili og ef að hann hefði labbað eitthvað í burtu þá hefði hún fylgt á eftir.“
Jóhanna Björk segir að þegar Helgi eigandi dýragarðsins á Slakka hafi komið að búrinu morguninn eftir að Sefur var tekinn, hafi það staðið galopið og Merkúra staðið þar skjálfandi. „Hún var í sjokki og skalf þegar komið var að henni. Eins og hún hefði orðið vitni að einhverju.“ Eftir atburðinn hefur Merkúra lítið viljað borða, verið óvenju róleg og dauf í dálkinn að sögn Jóhönnu.
Hún vill biðla til þeirra sem hafa Seif undir höndum að skila honum aftur. Hún bendir á að það heyrist mjög hátt í fuglum af þessari tegund svo ef fólk heyrir hávært fuglahljóð í nágrenni sínu sem það hefur ekki orðið vart við áður að hafa samband við dýragarðinn Slakka eða lögregluna.
„Sýnið miskunn og skila honum aftur á heimili sitt í dýragarðinum. Fuglsins vegna og makans. Við viljum bara fá hann aftur og munum ekki kæra eða neitt slíkt. Það er aldrei of seint að gera góðverk,“ segir Jóhanna Björk.

Stóra IKEA-málið
Mannránin í Cleveland
Harmleikur á Egilsstöðum
Alþingiskosningar 2013