Ritstjórn DV
ritstjorn@dv.is
16:15 › 22. júní 2012
Vilhjálmur Bretaprins mun á næstu dögum fá andvirði tæplega tveggja milljarða króna, eða um tæplega 10 milljónir punda, í arf eftir móður sína.
Vilhjálmur sem verður þrítugur í dag, föstudag, átti ekki rétt á arfinum fyrr en hann yrði þrítugur. Þetta mun líklega koma sér ágætlega fyrir prinsinn, sem sjálfur á þó nokkur hundruð milljónir króna, en hann kemur til með að erfa sjálft konungdæmið í framtíðinni.
Arfurinn mun þó hafa lítil áhrif á daglegt líf Vilhjálms að sögn aðstoðarfólks hans. „Hvaða breytingar sem verða á fjárhagsstöðu hans verða engar augljósar breytingar á daglegu lífi hans á komandi vikum eða mánuðum,“ segir í yfirlýsingu frá skrifstofu prinsins til breska blaðsins Telegraph.

Hemmi Gunn fallinn frá