Jón Ásgeir á glænýjum Range Rover

Dótturfélag 365 miðla keypti bíl sem Jón Ásgeir hefur til afnota

Jón Ásgeir Jóhannesson fjárfestir hefur haft margra milljóna króna bifreið til afnota sem er í eigu dótturfélags 365 miðla, fjölmiðlasamsteypu í eigu eiginkonu hans, Ingibjargar Stefaníu Pálmadóttur. Bifreiðin var keypt glæný 16. maí síðastliðinn og er um að ræða Range Rover Evoque. Samkvæmt listaverði kostar slíkur bíll minnst 11,64 milljónir króna. Jón Ásgeir segist sjálfur aðeins hafa haft takmarkaðan aðgang að bílnum og að bílinn sé einn af fjölmörgum bílum fjölmiðlasamsteypunnar sem starfsmenn hafa til afnota.

Á sjálfur þrjá bíla

„Bíllinn er ekki keyptur fyrir mig, en ég hafði hann til takmarkaðra afnota og greiði að sjálfsögðu skatt af þeim afnotum eins og öðrum greiðslum og hlunnindum sem ég hef frá félaginu,“ segir Jón Ásgeir í svari við fyrirspurn DV vegna bílsins. Hann svaraði spurningum DV í gegnum tölvupóst en hann svaraði því ekki hvort hann teldi fjárhagsstöðu fyrirtækjanna tveggja, 365 miðla og Hverfiseigna ehf., sem er skráð eigandi bílsins, vera nógu góða til að kaupa bifreiðar á borð við þessa fyrir starfsmenn sína.

„365 miðlar eiga tæplega 30 bifreiðar af ýmsum stærðum og gerðum og þær bifreiðar ganga í gegnum sitt endurnýjunarferli eins og gengur, en ég mun ekki hafa mikil afnot af bifreiðum þaðan,“ segir hann og bætir við að hann sé lítið á landinu og noti því bílinn væntanlega lítið. „Ég dvel einungis í um 30 daga á Íslandi á ári og á sjálfur þrjá bíla.“ Jón Ásgeir segist þó reikna með því að nota bílinn aftur í framtíðinni, þó að hann sé ekki keyptur fyrir hann sérstaklega. „Gæti þó verið að ég þyrfti að fá afnot af bíl 365 í 2 daga í september og einn dag í október ég læt þig vita hvernig það verður þegar nær dregur …“ skrifaði Jón Ásgeir svo að lokum.

Meira »


Gleymt lykilorð?

Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.