„Þetta er ömurlegt, ég ætlaði aldrei að drepa þessa mannskju,“ sagði Hlífar Vatnar Stefánsson í Héraðsdómi í morgun. Hlífar hefur játað að hafa orðið Þóru Eyjalín Gísladóttur að bana. Hlífar hefur verið metinn sakhæfur af geðlæknum.
Hlífar kom sjálfur á lögreglustöð og tilkynnti um morðið. Þegar lögreglumenn komu að heimili Hlífars í vetur, fundu þeir lík Þóru Eyjalínar sem hafði verið stungin ítrekað og skorin með hnífi. Hún hafði verið látin í einn til tvo daga.
Sumir áverkanna voru veittir eftir andlát sagði blóðmeinafræðingur fyrir rétti í dag. Vitnisburður hans varð til þess að nokkrir viðstaddir í réttarsalnum fóru að gráta.
Svarar með skætingi
Hlífar Vatnar svaraði saksóknara oft með skætingi þegar hann var spurður spurninga . „Ég veit ekkert um hvað þú ert að tala. Ég ætlaði engan veginn að drepa þessa manneskju. Þetta skeði bara,“ sagði hann og bar við minnisleysi.
Fyrir morðið höfðu bæði hann og Þóra Eyjalín verið í ritalínneyslu, en þau dvöldu að heimili hans við Skúlaskeið.
Faðir Hlífars átti að bera vitni í morgun og þegar hann var kallaður upp til þess kom í ljós að hann hafði setið í salnum allan morguninn. Vitni mega ekki gera það og sagði dómari að hann teldi að vitnisburður hans væri ónothæfur. Hann gaf þó vitnisburð sinn en fært var til bókar að hann hefði setið í salnum.
Hann sagði að hann hefði átt í samskiptum við Hlífar helgina sem morðið var framið. Hann vissi ekki af Þóru í húsinu og hafði bannað henni að koma. „Það var eintómt vesen og rugl sem fylgdi henni. Ég hringdi alltaf á lögregluna þegar hún kom.“
Blöskraði umgengnin
Faðir Hlífars hitti hann öll kvöldin umrædda helgi, en hann fór aldrei niður í kjallara þar sem Hlífar dvaldi. Þess vegna vissi hann ekki af Þóru þar eða að hún væri látin.
„Mér blöskraði svo umgengnin og það hafði leitt til átaka áður,“ sagði faðir hans, en hann hafði lent í handalögmálum við son sin vegna umgengninnar. Faðir hans kvað Hlífar ekki hafa verið í harðri neyslu fyrr en hann kynntist Þóru.
„Það hvarflaði ekki að mér að hún væri þarna, því hún vissi að hún væri óvelkomin.“
Alltaf með hnífa
„Hún var alltaf með einhverja hnífa í kring um sig,“ sagði faðir Hlífars, aðspurður um það hvort Þóra hefði venjulega borið hnífa. Hann sagðist handviss um að morðvopnið kæmi ekki af heimili hans.
Spurður um nálykt
Þá var hann einnig spurður út í lykt í íbúðinni, en þegar lögreglu bar að garði fannst mikil nálykt frá húsinu.
Hann hafði sagt í lögregluskýrslu að hann hefði fundið vonda lykt í íbúðinni. „Ég veit núna að þetta er nálykt. Ég vissi það ekki þá. Ég fann þessa lykt í húsinu og leitaði út um allt. Ég sá að þau höfðu steikt sér nautahakk og skilið restina eftir inni í skáp. Ég tók það og henti því. En þessi lykt var ennþá um kvöldið.“
Hann tók eftir því að Hlífar hafði fært sig á milli herbergja á sunnudeginum. Hann leit því inn til Hlífars og sagði honum að hann gæti ekki flutt sig á milli herbergja, bara vegna þess að draslið væri orðið yfirþyrmandi. Hann rak Hlífar því aftur inn í herbergið þar sem Þóra var látin, en vissi ekki af henni þar.

Alþingiskosningar 2013
Blóðugt uppgjör í Seljahverfi